Velkomin(n) á vefsvæðið

Í FRAMLÍNU – lögreglumenn segja frá

Bókin Í FRAMLÍNU – lögreglumenn segja frá, fjallar um lögreglustarfið út frá sjónarhóli lögreglumanna. Bókin, sem kom út um miðjan febrúar 2026, er í fremur stóru broti og meira en 250 blaðsíður. Hún byggir á viðtölum við tugi lögreglumanna, og lýsir bæði reynslu þeirra og viðhorfum til starfsins.

Tilgangurinn með bókinni er sá að kynna lesendum reynsluheim lögreglumanna og eðli starfsins á sem breiðustum grunni. Upplifun, áskoranir, og afstaða til félaga og samfélagsins, auk áhrifa starfsins á lögreglumenn sjálfa og fjölskyldur þeirra standa framar atburðarásinni í sögunum. Auk þess gefur bókin gott sögulegt yfirlit um störf og starfsaðstæður lögreglumanna síðustu áratugina.

Fáeinir útdrættir úr sögum lögreglumanna eru birtir hér á vefsíðunni.